02.08.2007 10:27:03 / 4_g

Úlallla...

Lofaði ég ekki bloggi einhverntímann?

Kannski frekar seint í rassinn gripið en hvað er fólk að gera um verslunarmannahelgina? Hverjir verða á Ak? Hverjir í Eyjum? og hverjir í útileigu eða eitthvað annað skemmtilegt?
Ég verð að viðurkenna að mig langar nú dálítið til eyja en maður er allt of seinn í þessu, þetta er samt svona eitthvað sem maður verður að prófa, vera í allt of stórum appelsínugulum pollabuxum í lopapeysu í rigningunni að fá sér, syngja í brekkunni og ég veit ekki hvað og hvað.. aaa.. einhverntímann já einhverntímann!

Er ekki annars bara allt gott að frétta af fólki?(Ef einhver lítur hingað inn ennþá)

Endilega látið vita af ykkur í kommentum ;)

Kv. El Saros



 


» 8 hafa sagt sína skoðun

26.06.2007 12:00:54 / 4_g

Jæja kids

... þetta er svakaleg tilraun sem ég er að gera.

Ef einhver - EINHVER - úr bekknum okkar, 4. G, skyldi nú asnast til að koma inná þessa síðu, þá er allt í einu komið nýtt blogg!

 hva? hva??

Ástæðan fyrir því er sú að við eigum að halda þessu bloggi uppi. MA er búinn krakkar, BÚINN!!!!!! Svoleiðis að þetta er okkar staður til að kommjúnikeita. Setja inn myndir, sögur (aðallega lífsreynslusögur) og fleira.

 

En þar sem þetta er bara tilraun þá vil ég fá komment frá ykkur, sýnum smá metnað hérna!!!

Segið nú frá því í kommentum hvað þið eruð að gera í sumar! ;)

 

Ég býst við svakalegum viðbrögðum. Kv. ERLA (Lisa Simpson)

p.s. ég held ég sendi sms á ykkur svona upp á grínið !


» 15 hafa sagt sína skoðun

07.02.2007 10:35:15 / Þórólfur

..........

.........................hey......fokkið ykkur.....................já ég sagði fokkið ykkur.................:evil:

» 0 hafa sagt sína skoðun

03.01.2007 21:53:22 / 4_g

2007

GLEÐILEGT NÝTT ÁR BEKKJARFÉLAGAR:haha: með þökk fyrir allt gamalt og gott;*

kveðja Kolla


» 3 hafa sagt sína skoðun

25.12.2006 04:55:45 / 4_g

Jólakveðja

Gleðileg Jól krakkar mínir.
Þið eruð öll svo falleg.
Svo falleg.
Æðisleg.
Hlakka til að hitta ykkur feit og sæl eftir jólafríið.

kveðja..
Lilja Minný Sigurbjörnsdóttir.

» 2 hafa sagt sína skoðun

20.12.2006 09:01:08 / Þórólfur

Önnur dramatísk frétt frá lífi Þórólfs

Jæja krakkar... ég vaknaði við það að síminn hringdi í morgun, það var pabbi að segja mér að 2 stórar aurskriður hefðu fallið á bæinn minn. Heimska veður. Milljónatjón? því verður ekki svarað strax en það er afar líklegt.

Annars óska ég ykkur gleðilegra jóla.... veit ekki hvar mín verða haldinn :s

» 4 hafa sagt sína skoðun

18.12.2006 11:19:50 / Þórólfur

Bréf til Hagkaupa er gert opinbert

Ég verslaði í Hagkaup á Akureyri síðastliðinn laugardag fyrir rúma áttaþúsund krónur, ég reyndi að borga með debitkorti en það gekk eitthvað illa svo að ég bauðst bara til að borga með peningum. Og ekkert mál, ég fékk það. Daginn eftir kemur það í ljós að ég hafi verið rukkaður um 22880 krónur af kortinu mínu. Alldrei hef ég áður séð þvílíkar aðfarir eins og þegar kortinu mínu var rent í gegnum "posann" trekk í trekk. Ég fer í málið, tala við verslunarstjórann og hún bendir mér á að fá útprentun á yfirliti og upplýsingar um þessa færslu. Og þegar þetta var skoðað í Hagkaup kom í ljós að ég hafi verið að borga fyrir "manninn" sem kom á kassann rétt á eftir mér.
Hann hafði kvittað undir. Þetta er mér allgjörlega óskyljanlegt að þetta skuli geta gerst.

Þarna var í einum vettfangi mínu fjárhagslega öryggi kyppt undan mér. Því fyrir mig er 22880 kr hellingur af peningum. Þetta olli mér miklu hugarangri og veseni í að snúast í kringum þetta, ég þurfti að sleppa því að mæta í skólann til að komast í
 bankann og svo framvegis. Þetta var engannveginn mér að kenna, til að hafa það á hreinu. Verslunarstjóri hagkaupa setti þetta í hendur annarar konu sem segist síðan ætla að endurgreiða fyrrgreinda upphæð. En ATH ég var ekki beðinn afsökunar áður en ég fór, mér var einungis bennt á það að fá mér nýtt kort því að það væri kortinu að kenna að þetta hefði farið svona (hvaða vitleysa, það
 hefur hvergi verið vandamál með kortið og þá myndi ég frekar kenna kassakerfinu um.)

Þetta mun hafa það í för með sér að ég kem ekki til með að bera Hagkaup góða sögunna, ég mun sennilega ekki versla neitt frá Hagkaup
í nánustu framtíð.

Formleg afsökunarbeiðni hefði verið allgjört lágmark.

Ég er sár og svekktur, bjóst við meiru af þessari verslun sem ég hef gengið inní oft í viku og verið ánægður viðskiptavinur.

Þó svo ég fái upphæðina endurgreidda, þá líður mér illa yfir þessu og ekki batnaði líðanin þegar ég "mátti bara fara" og
"skalt fara í bankann og fá þér nýtt kort" eins og þetta hefði klárlega mér og mínu korti að kenna, ekki kassakerfinu í hagkaup né
 afgreiðslustúlkunni sem nýddist á kortinu mínu.

Sár og svekktur Þórólfur

» 3 hafa sagt sína skoðun

14.12.2006 12:45:55 / 4_g

Afmælisbarn Mánaðarins!

Okkar ástkæri bekkjarbróðir átti afmæli í gær og varð 19.ára pilturinn:haha:

TIL HAMINGJU MEÐ DAGINN GUÐNI a.k.a Spiderman

Kveðja þínir ástkæru Bekkjarfélagar:haha:


» 1 hafa sagt sína skoðun

13.12.2006 10:12:09 / 4_g

Búlgaríutrip


» 4 hafa sagt sína skoðun

28.11.2006 10:16:46 / 4_g

what the hell ég blogga bara

Halló kæru bekkjarsystkini. Me llamo Erla.

Hvað segiði svo í dag? Eru ekki allir bara vinir eða? jújú gott.

Ég er ennþá að drepast í maganum því ég borðaði of mikið af kökum í gær. but it was guuuuud. MundaogGeirakakan var góð og líka skúffukakan sem Kolla kom með, og doritos, alltaf klassík.

EN, eru allir búnir að redda sér þjóðbúningi?

En hvað með dömu/herra til að fylgja inn í salinn?

En hérna.... kunna allir þennan skólasöng eða? Ég vissi ekki einu sinni að við þyrftum að syngja eitthvað... hver ætlar að kenna mér lagið!!! shæææse. Reyndar er söngsalur núna og þetta verður örugglega æft á eftir en ég hata söngsal! sorry man.

En ok loksins bloggaði einhver stelpa hér og er ekki best að reyna að halda þessu eitthvað uppi eða?!??? Svo á líka eftir að finna nokkrar myndir hérna til hliðar, think people, think.

ciao ciao miaow


» 7 hafa sagt sína skoðun

24.11.2006 15:36:08 / Kristmundur stóri

Mundi vs allir hinir

Hvað er málið með þessa skoðanakönnun???

Nú er ég búinn að kjósa mig æðislegan svona 20 sinnum en engu að síður er sá valmöguleiki ekki að vinna!! Ég trúði ekki á illsku fólks fyrr en ég sá þetta...

Morfís í kvöld..


» 2 hafa sagt sína skoðun

23.11.2006 20:35:10 / Þórólfur

.........

Blogg

Takk fyrir

» 1 hafa sagt sína skoðun

14.11.2006 10:54:27 / 4_g

NÝ FRÉTT..

Sælir bekkjarfélagar og aðrir..

Ég vil bara bjóða nýju stelpuna velkomna í bekkinn hana Guðný..:haha:

En heyrst hefur að Mundi sé eitthvað farinn að gefa henni auga..

En ég held hún laðist nú meira af hinum kynþokafulla Þóa.. HVAÐ MUN GERAST! með hverjum endar Guðný..

TO BE CONTINUED.....

OUT... koLLa OfurKona


» 17 hafa sagt sína skoðun

13.11.2006 10:41:08 / Þórólfur

Smá tilkynning eða pistill eða eitthvað

Jæja svo virðist sem að ég sé að gerast ein allsherjar pistlahöfundur fjórða bekks G. Ég geri það ekki af brennandi áhuga heldur þörf fyrir að anna eftirspurn, fólk streymir inn á síðuna og ekkert gerist! Ég var búinn að skora á Munda að skrifa smá minningargrein úr partýinu, hann sveikst undan því, sem ég tel bara vera allgjöra móðgun við okkur hin. En hinsvegar er það ljóst að maðurinn hefði þurft smá minningar úr partýinu til að skrifa greinina, það eru minningar sem vafi leikur á að Mundi búi yfir í dag. Það hefði þó verið ákveðin Klassík yfir því að Mundi hefði skrifað pistil undir yfirskirftinni “Samkoman á Ytri-Vík, séð í gegnum augu ölvaðs manns” en nóg um það!..... Mér skilst á öllum að þetta hafi verið vel heppnað partý, ég var þarna þar til um eitt leytið þegar að ég “skurðaði”… Mundi ku hafa verið maður veislunnar, heyrst hefur að hann hafi brotið hurðarkarm, fleygt nýnemum fullum klæða í pottinn, lagt bekk sem var við hendina ofan í heitann pott og þeir sem gerast hvað djarfasti í lýsingum segja hann hafa pissað í gufuna. (margræðni orðisins gufa verður þó að teljast vandamál í þessum skilningi.)

 Annars var þetta góð helgi, allavega að mínu mati, ég spilaði póker á föstudagskvöldið undir áhrifum áfengis, sem endaði með því að ég vann alla spilapeningana……..jeij :/ það hjálpaði að sjálfsögðu til að þeir sem ég var að spila við voru flestir ölvaðri en ég.

 Gott ef Guðni og Geir fóru ekki suður á föstudaginn að fíflast eitthvað í leiktu betur, hef ekki frétt neitt af gengi þeirra en ég reikna með því að þeir hafi leikið vel án þess að leika yfir sig!  

 Sumir sem ditchuðu partýið á laugardaginn fóru í Sjallan og bera okkur góðar sögur af þeim dansleik, hinsvegar þykist Rebekka hafa staðið inní tveimur ótengdum slagsmálum án þess að hafa átt nokkurn hlut að máli :O…..

 Pepsi-ið mitt er orðið dautt þannig að ég er hættur í dag!

En meðfylgjandi mynd er af deitinu hans Kristmundar eftir partý-ið....... with love :*


» 8 hafa sagt sína skoðun

09.11.2006 22:09:49 / Þórólfur

Nýtt samband innan Bekkjarins

Já góðir hálsar mér er sönn ánægja af því að birta ykkur heitar fréttir af framgangi  ástarmála. Svo virðist sem að Kolla og Mundi hafi ákveðið að opinbera samband sitt meðfylgjandi mynd náðist af þeim á gangi fyrir utan Suddann þar sem Mussi hafði boðið sinni heittelskuðu í mat. Að sögn ætluðu þau svo að fara í "biðröð" eftir miðum í Sjallan. Heyrst hefur að ALLAVEGA konan í sambandinu muni ekki láta sjá sig í busapartýi sem fyrirhugað er um komandi helgi, en það hefur ekki verið formlega staðfest.



Mussi þykir vera afar getnaðarlegur á myndinni

» 10 hafa sagt sína skoðun

Síður: 1 2
RSS tengill